Fjallkonan

Fjallkonan

Sumarið 2004 fundu Ágúst Borgþórsson vélstjóri og Unnar Sveinlaugsson vélsmiður frá Seyðisfirði nælur í urð og grjóti á Vestdalsheiðinni.  Fornleifafræðingar mæta á staðinn undir stjórn Sigurðar Bergsteinssonar minjavarðar Norðurlands Eystra og uppgvöta leifar konu frá tíundu öld, nokkrar skartnælur, líkamsleifar og um 500 perlur.  Brynja Björk Birgisdóttir fornleifafræðingur skoðar perlurnar og segir frá þeim. Fornbeinafræðingarnir  Hildur Gestsdóttir og Guðný Zoëga skoða beinin og segja okkur hvort hún hafi alist upp á Íslandi og hve gömul hún var.

Hver var þessi kona ?  Ýmsar staðreyndir og getgátur koma fram og segir Valgerður H. Bjarnadóttir okkar m.a. að hún hafi verið völva.

Sigurður setur fundinn í samhengi við annan sambærilegan fund í Norgei og segir okkur frá tíðarandanum á þessum tíma.

Fundurinn reyndist einstakur,  því aldrei áður hafa leifar svo skartklæddrar konu frá víkingaöld fundist á víðavangi.

  Myndin er unnin í samstarfi við:

    Þjóðminjasafn Íslands:      Margréti Hallgrímsdóttur

    Fornleifavernd Íslands:      Kristín Huld Sigurðardóttir

 

Guðbergur Davíðsson-leikstjórn

Örn Marínó Arnarson-klipping

Hallur Ingólfsson-tónlist

Sunna Sigurðardóttir-teikningar

 

Lengd;  28 mínútur.

 

Almennt verð:  kr. 2500,-       Panta hér   info@ljosop.is

 

Pósthólf 5481 • 125 Reykjavík • info@ljosop.is

Hönnun og uppsetning, Hugsa sér ehf
Ljósop, merki
Random11.jpg